Páskavefur
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
16.03.2006 23:52:05 / Gaukdal

Korter til að blogga!

Já shjitt:!: nú skal ritað hratt og örugglega svo að færslan náist nú fyrir klukkan tólf8| ég er að skíta á mig með þetta blessaða bloggmaraþon mitt og af hverju í ósköpunum var ég að fatta þetta:whut: fékk flugu í hausinn:!: og framkvæmdi vitleysuna:!: eins og einhver snillingurinn sagði: ef einhver hugmynd kemst í gegnum allar nefndir hjá hinu opinbera er hún ekki þess virði að hrinda henni í framkvæmd:!: AMEN:!:

Annars er ég svo ógeðslega mikið að læra að ég er hætt að fara í sturtu, hætt að borða, hætt að tala í símann og hætt að taka til8| Þessi Böl**** lærdómur á allann minn tíma... er einmitt að gera núna svona "book-report" og það er ekki skemmtó, svo á ég eftir að liggja í tölvuverkefnunum núna frammá nótt, fara í leikhús með íslenskudeildinni á morgun á leikrit sem kennarinn valdi og skyldaði okkur til að koma á og ENGUM langar að sjá:!: svo líka eitt? má skilda mann til að fara eitthvað á vegum skólans, UTAN skólatíma, ef þú þarft svo að borga það sjálfur? hún sagði að ef við förum ekki þá erum við fallin:frown:

Já þetta er ekki skemmtilegt en fattiðið eitt, þetta er blogg númer 16 og það er 16. í dag svo ég er enþá í maraþoninu:!: JEI:!:

en ég ætla að enda þetta svo ég nái fyrir tólf... shjitt:!:8)


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 15:59:40 / Gaukdal

Fyrir morgundaginn...

Það er alltaf svo mikið að gera og HALLÓ ef einhver tók ekki eftir því þá bara var helgi og svo núna er AFTUR að koma helgi:!: það er eins og á hverju ári þá glötum við einni heilli mínútu eða eitthvað og við erum virkilega að taka eftir því núna:!: ég meina kommon, erum við að lifa í svona hröðu samfélagi að lífið flýgur framhjá eða erum við bara að tapa skynjuninni á tímanum8| Are we totally looosing it? Eða höfum við bara meira að gera í dag heldur en fyrir 10 árum síðan? það eru bókstaflega alltaf að koma jól:!:8| allir dagar eru helgar og alltaf er maður að kaupa páskaegg og jólagjafir og aldrei hefur maður tíma fyrir neitt og þá er ég að tala um sjálfa mig... Ég er t.d. ein af þessum íslendingum sem hafa aldrei tíma fyrir neitt vegna þess að ég þarf alltaf að vera helst að gera tvo ef ekki fimm hluti í einu til að ég komist yfir það sem ég þarf að gera á einum heilum degi og það er ógeðslega pirrandi því líka að ef ég get ekki klárað dagsverkin þá bætast þau á morgundaginn sem þýðir að ég þarf að gera allt tvöfallt:!: og tala nú ekki um dagana sem þrifin bætast ofaná allt saman:$ svo vogar fólk sér að segja að þetta sé skipulagsleysi:whut: Ég hef lagt í það að skipuleggja mig eitthvað sérstaklega og Guð minn hvað það fór mikill tími í alla þá skipulagningu og alltaf gleymdi ég einhverju sem passaði ekki inn í skipulagið loksins þegar það var tilbúið svo ég ákvað að sleppa öllu skipulagi og það hefur virkað betur:| Svo er líka það að maður stjórnast alveg svakalega af klukku8| hafiði tekið eftir því? hversu oft helduru að þú lítir á klukkuna á einum degi og hugsir að þú sért að vera sein/n eða þetta byrjar eftir X margar mínútur:!: hvernig væri að hafa klukkufríann dag? allir að skilja klukkuna eftir heima... værum við ekki eins og rjómaterta á kjötmarkaði? ég tók sérstaklega eftir því í skólanum í dag að matsalurinn var fullur af fólki svo hringdi bjallan og allir stóðu upp og matsalurinn varð alveg tómur, bara eins og enginn hefði nokkurntímann stigið fæti þar inn...

Málið með mig og stjórnast af klukku er að ég var eiginlega bara að fatta hvað klukka er mikill og stór partur af lífinu mínu, hún vekur mig á morgnana, hún segir mér þúsund sinnum á dag að ég er að verða of sein og hún segir mér að núna á ég að vera þreytt því klukkan er orðin svo margt8| það er eitthvað bogið við þetta og ég held að þetta sé bara samsæri...

...allavega, þegar ég lít á klukkuna þá er ég að verða of sein og ekki í fyrsta skiptið:$


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 11:54:38 / Gaukdal

Its not easy to be me...

Ég var eitthvað að hugsa um lífið og tilveruna og reyndar líka að horfa í kringum mig á aðra og þeirra líf og það er alveg magnað eftir hverju maður tekur í fari annara og mismunandi aðstæður sem við sjáum aðra í... t.d. ef maður sér einhvern einn daginn sem er rosalega glaður en næsta dag er hún að tala í símann og er bara niðurbrotin, svo ég fór að hugsa hvað lífið er viðkvæmt og mikið sem getur stuðlað að hamingju og einnig mikið sem getur stuðlað að vesæld og óhamingju og ég þurfti að minna mig á að allir eru elskaðir, líka þessi viðbjóðslega leiðinlegi drengur sem klíndi tyggjói í hárið á stelpunni sem sat fyrir framan hann,  ALLIR eru elskaðir af einhverjum hvort sem þið vitið það eða ekki, ég veit ekki af hverju en mér fannst það merkilegt og þá datt mér í hug lagið "Its not easy to be me" og ég held að við vitum öll hvernig það er að lenda í lægð í lífinu svo hérna er textinn...

I can’t stand to fly
I’m not that naive
I’m just out to find
The better part of me

I’m more than a bird…I’m more than a plane
More than some pretty face beside a train
It’s not easy to be me

Wish that I could cry
Fall upon my knees
Find a way to lie
About a home I’ll never see

It may sound absurd…but don’t be naive
Even Heroes have the right to bleed
I may be disturbed…but won’t you concede
Even Heroes have the right to dream
It’s not easy to be me

Up, up and away…away from me
It’s all right…You can all sleep sound tonight
I’m not crazy…or anything…

I can’t stand to fly
I’m not that naive
Men weren’t meant to ride
With clouds between their knees

I’m only a man in a silly red sheet
Digging for kryptonite on this one way street
Only a man in a funny red sheet
Looking for special things inside of me

I'm only a man in a funny red sheet
I'm only a man looking for her dream
I'm only a man in a funny red sheet
and it's not easy to...

It’s not easy to be me.

...en nóg komið af þunglyndisfærlsu dagsins...

farin í þýsku 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 08:31:06 / Gaukdal

Ég get svo svarið það...

:!: ég er núna búin að nota 3 "veikindadaga" en í rauninni bara tvo þar sem að ég og Danni :D vorum sammála um að leyfa mér að eiga þennan dag sem ég notaði ómeðvitað...

Málið var að ég bloggaði ekki í gær því þá þurfti ég að fara uppá slysó þar sem að ég gat ekki andað og fékk svo rosalega sárann sting í brjóstkassann og hjartað, að mér fannst sem reyndist svo vera ekki, að mér fannst ég bókstaflega vera að deyja8| en allavega, komin á slysó og inn fór ég í hvelli í alls konar rannsóknir, hjartalínurit, blóð- og þvagprufu og rönten og eitthvað... og þetta tók líka ekkert smá langan tíma eins og annað þarna á bráðamótökunni... eins og ég hef alltaf sagt: "af bráðamóttöku að vera eru þau ekki ýkja bráð":whut: en svo kom loksins þegar ég fékk niðurstöðurnar þá kom í ljós að lifrin, lungun, hjartað, gallblaðran, og annað sem inní mér er, eru alveg heil og ekkert að þeim... en málið er að ég var að fara í þrjú próf og var sein og allt í stressi svo eg er bara of stressuð týpa greinilega (Dagný þú hafðir rétt fyrir þér) og stressið náði mér alveg þarna...

En já þetta er aldrei skemmtilegt, en svo þegar ég var loksins komin heim í gær þá gat ég lagt mig þangað til að ég átti að fara að ná í  mömmu í vinnuna og þegar það var búið þá fór ég í mat til Guðlaugar og svo þegar ég var búin þar skrapp ég til Ragnhildar vinkonu og kom heim tuttugu mínútur yfir tólf á miðnætti...

Svo dagurinn í gær var ekki besti dagurinn fyrir blogg...

En ég segi bara lifið heil og þetta verður ekki lengra í bili...


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 17:15:09 / Gaukdal

Alveg óþolandi!!!

Já ég get sagt ykkur það:!: í gær notaði ég ómeðvitað annan veikindadag:!:!: það var svo mikið að læra að ég fattaði ekki að ég átti eftir að blogga fyrr en klukkan var 01:03 eftir miðnætti:whut: svo nú er eins gott að passa sig og muna eftir að blogga eins og crazy person:!:

En dagurinn í gær fór, eins og áður sagði, í þvílíkann lærdóm að ég held að ég hafi lært miklu meira í gær heldur en ég er búin að gera alla skólagönguna mína 8| svo var ég að frétta NÚNA að ég á ekki að skila þessari viðbjóðs ritgerð fyrr en 24. mars :whut: Var ekki hægt að segja manni þetta eitthvað fyrr:whut:

það sem ég átti að gera er:

  1. kjörbókarritgerð í íslensku (byggir á því að ég sé búin að lesa bókina, sem ég er ekki búin að) hélt að það væri fyrir morgundaginn:!:
  2. æfingu á 5 ritgerðarefnum fyrir tímaritgerð þar sem að aðeins 2 ritgerðar efni koma fyrirm, byggist líka á því að hafa lesið bókina sem ég á eftir, skilast á þriðjudaginn...
  3. 17 Word verkefni í tölvum, á að skilast á morgun...
  4. 6 Ritgerðaræfingar í tölvum, á að skilast á morgun...
  5. 20 exelverkefni í tölvum, á að skilast á þriðjudaginn...
  6. Lesa og gera kynningu fyrir bókina "The Body In The Library" skilast á þriðjudag...
  7. Verkefni í Stærðfræði...
  8. Læra undir íslenskupróf... (mánudagur)
  9. Læra undir líffræðipróf... (mánudagur)
  10. Læra undir þýskupróf... (mánudagur)
  11. Lesa og muna utanað 21. kafla í Brekkukotsannál fyrir einnar einingu útskriftaráfanga:!:... kommon:!: skólastjórinn kennir þetta og við erum spurð hvað við vitum og ef þú veist ekki svarið þá er bara SORRY:!: mínus í kladdan og hérna er próf:whut: skilast á þriðjudag...
  12. Gera skýrlsu og skila þremur blaðsíðum um frævinga í náttúrunni, skilast á morgun:!:
  13. Gera ritgerð í siðfræði um fóstureyðingar... átti að skilast fyrir viku siðan...

...held að þetta sé svoan nokkurn veginn allt, en ég er með það á hreinu að ég er að gleyma einhverju...

það sem ég er búin með aftur á móti er:

  1. 7 Word verkefni
  2. 6  Exelverkefni
  3. Skýrslan um frævingana
  4. lesa helming af tímaritgerðar bókinni
  5. lesa 3/4 af kjörbókarritgerðarbókinni

...ég er svo stolt af sjálfri mér eða hitt og heldur :whut: mér finnst ég ekki hafa áorkað neinu og ég á í dag eftir að lesa undir 3 próf og klára tölvudæmið:!: það er ekki eins og ég hafi trassað þetta allt saman uppá síðasta dag og hugsað "hvað ætli ég geti komið mörgum verkefnaskilum á sama daginn" nei nei, heldur var þetta sett niður á nemendur í ljósi Sæludaganna sem voru í skólanum, og ALLIR þurftu endilega að setja þetta á sama daginn:!::!::!::!::!:

vill einhver skipta um líf?8|

...en í ljósi þess sem að ég "missti" algerlega óvart daginn í gær þá er ég að hugsa um að bera það undir ykkur hvort að það sé í lagi að ég eigi þennan veikindadag inni EF það skildi nú koma til þess að ég þyrfti að nota hann... það er ekki eins og ég hafi ekki nennt að blogga... hvað finnst ykkur? meirihlutinn ræður...

anyways, back to those boring, skanky, horrible, smelly and hairy books;)

...eða eitthvað...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 16:11:49 / Gaukdal

Jæja já!

Ég er alveg farin að sjá það að eftir að ég byrjaði þetta bloggmaraþon þá hafa lesendur bara látið sig hverfa:!: HUHU:whut: enginn commentar á neitt og teljarinn hækkar bara eftir því hversu oft ég fer inná þessa síðu sjálf8| svo ég geri hérna "last attempt" til að reyna að halda þessu gangandi og hef því sett tugi tengla inná síðuna mína, eins og þið kannski takið eftir ef þið komið hingað:!: ef þið fattið einhverja tengla sem sniðugt er að setja inná þá endilega komið með það en ég er langt frá því að vera hætt8) markmiðið er að taka yfir Google companýið:haha: nei ekki alveg en ég kem sterk inn...

Annars vaknaði ég bara í morgun eins og ábyggilega flest allir aðrir og skrapp svo út í búð þar sem líka hundurinn var að pissa í sig af því að ég svaf svo lengi;) Ég eldaði:!: tóku þið eftir þessu? ég ELDAÐI8| og alveg sauð kartöflur og allt saman8) en svo hef ég bara setið við tölvuna síðan og ekki nennt að hreyfa mig... 8|

allavega ekki meira í bili...

stay black and dance in the streets where its raining men under the trees:!: ...eða eitthvað8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 21:44:37 / Gaukdal

Góða kvöldið dúllurnar mínar!

Ég er búin að vera í fríi frá skólanum í dag og verð það framm á sunnudag og fer í skólann á mánudaginn, unfortunatly:!: ég átti alveg ágætann dag í dag svosem... vaknaði í hádeginu og fór svo að læra í rólegheitum, tók mér svo frí frá því og fékk æði fyrir að setja tengla inná síðuna um ALLT og ALLA sem mér datt í hug og ég get sagt ykkur að það er sko more to come:!: ég er orðin alveg tenglaóð8) en égf ætla svosem ekki að segja neitt mikið meira og leyfa ykkur bara að skoða alla tenglana því að ég veit að það tekur tíma en ég vona að þarna sé eitthvað fyrir alla... ;)

over and gone crazzzy8):haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 10:48:38 / Gaukdal

Sæludagar!

Það eru sæludagar, eða æludagar eins og ég kýs að kalla það, og ég er að læra ásamt öðrum hestum og það er frí í skólanum:!: HALLÓ:!: náðuði þessu, ég er uppí skóla að læra á sæludögunum:whut: sæludagar þýðir sko að ég get farið og gert allskonar hluti, skemmt mér semsagt, og ég valdi það að læra...

how sad am I? :cry:

annars hefur ekkert skemmtó gerst í dag eða í gær svo það er ekki frá neinu fleiru að segja nema kannski að núna er ég að fara og fá mér að borða... kannski maður taki Söndru vinkonu með sem situr hérna við hliðina á mér?:!: hún valdi nebbla líka að læra...

...við erum sorglegar, I know...


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 09:53:42 / Gaukdal

Í fréttum er þetta helst...

Ég og Rebekka vorum að klára RISA verkefni um Martin Luther king Jr og GVÖÐ minn hvað ég þoli ekki að standa fyrir framan bekkinn og tala:!: og er það nógu erfitt á íslensku tala nú ekki um ef maður þarf að flytja verkefnið á ensku:whut:

Við gerðum það einmitt, á ensku:!: ég tel mig vera svona alveg ágæta í að tala ensku en að þurfa að tala um eitthvað sem ég lítinn sem engann áhuga á fyrir framan fullt af fólki sem ég þekki ekki og vill ekki vera þarna eða nennir að hlusta in the first place:!: af hverju að pína mann svona:whut: Allavega, ég fór upp í púltið og ég fann bara hvernig ég varð rauð í framan, byrjaði að svitna en var samt ógeðslega kalt8| svo ekki nóg með það heldur byrjaði ég að skjálfa og munnurinn var svo þurr að ég fann allt í einu alveg rosalega mikið fyrir því að ég væri með tungu:whut: ég hef aldrei neitt sérstaklega tekið eftir því en málið er einmitt að þegar munnurinn þornar og tungan verður á við rostung þá vefjast fyrir manni orð eins og "communications" og "puplicity" og "brother":!: Orð sem ég á ekki í neinum vandræðum með að bera fram á hvaða degi sem er... lífið er bara stundum ekki sanngjarnt:cry:

En já, samt alltaf þegar maður er búinn með eitthvað svona þá er eins og þungu fargi sé lyft af herðum manns alveg þangað til að maður fattar að maður á að vera búinn að einhverju öðru, þá fæ ég alltaf FF (feitu frúna) á herðarnar á mér:whut: og það sem ég þarf að gera er ekkert smátt8| ég þarf nebbla að skila af mér á mánudag í næstu viku kjörbókarritgerð í íslensku, skila af mér kynningu á enskri bók í ensku, sem ég á by the way eftir að lesa:whut:, ég á eftir að gera 17 Word verkefni, 12 Exel verkefni og 5 power point verkefni, af því það var bara verið að setja mig í þennan áfanga núna:!: ég á líka eftir að gera stærðfræði verkefni,  taka ritgerðarpróf í ensku og surprise surprise ég er ekki byrjuð að lesa bókina:!: ég á líka eftir að læra undir sjúkdómafræðipróf og líffræði og gera skýrslu og læra undir þýskupróf OG gera verkefni í þýsku:!: og svo voga kennararnir sér að kalla þetta frí:whut: þetta er meiri vinna en vinnan sem ég er að vinna 8) sem minnir mig á það að ég er að vinna um helgina... hmmm... hvernig á ég að fara að þessu? en eins og þið sjáið er hún annsi feit og þung frúin sem situr á herðum mér:!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!:

Málið er líka að FF er frekar þungt núna, sæludagarnir eru að byrja eftir hádegi í dag og þá er bara keila, bláa lónið, billjard, singstar, bíó, skautar, hestaferðir og alls konar stöður sem kennarar í einn dag svo eitthvað sé nefnt, en hvað neyddist ég til að velja? LÆRDÓM:!: jamm það er svo fáránlega mikið að læra að ég ákvað að fá fjarvistir felldar niður á það, það er nebbla þannig að ef við mætum þá fáum við 12 stundir felldar niður og ég þarf sko á því að halda þar sem að ég var veik heima í tvær vikur8| ekki gott...

Já svo er líka eitt, í dag þarf ég endilega að vera að eiga einn versta "hair-day" ever:!: hárið á mér er ekki að lúta minni stjórn í dag og var ég áðan eldrauð í framan með hárið út í loftið:whut: og þegar ég meina út í loftið þá meina ég út í lofti og þessi raki og kuldi er ekki að hjálpa því hárið verður svo rafmangað, svo ég var eins og Gylitrutt lukkutröll í dag :whut: sjáiði það ekki fyrir ykkur ;)

Ég var líka að pæla í einu, að biðjast velvirðingar8| velvirðingar:!: velvirðingar:!: eitthvað svona fancy smancy orð sem ENGINN veit almennilega skýringu á en ALLIR kunna að segja þetta þegar þeir vita ekki hvaða afsökun þeir eiga að nota og allir gleypa bara við þessu:whut: vel-virðing:!: ef einhver notar þetta í návist minni þá sest ég á hann :!:

en já.... hafið það ágætt í dag bara


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 21:22:09 / Gaukdal

Hérna kemur það sem ég er búin að afreka yfir ævina...

( ) klesst bíl vinar/vinkonu
;) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja 
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) kveikt í þér viljandi 
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
;) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í árekstri
( ) verið með spangir/góm (telst það með ef maður er að tala um góm í karate?)
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x
) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) fengið vuja de

(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
;) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
( ) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti
(x) vakað í heilan sólarhring
(x) sofið yfir þig
(x) drukkið kaffi
(x) farið að gráta fyrir framan fullt af fólki
(x) verið vond/ur við einhvern
(x) tekið til nýlega
(x) leigt spólu ein/n
(x) rifist við einhvern
( ) keyrt á eitthvað
(x) komið of seint í bíó
(x) sleppt því að læra heima
( ) þvegið bíl
( ) horft á slys
( ) misst útlimi
(x) klagað einhvern

...svo er spurning um að reyna að fylla listann, nema nottla að missa útlimi og klessa bíla vinkvennanna og svona ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 13:51:11 / Gaukdal

Svo þreytt!!!!

Já ég er ógeðslega þreytt:!: helgin fór í allt annað en ég hafði planað, eins og afmælið mitt:!: hver planar það að eiga afmæli? þetta bara henti mig um helgina 8)

En allavega, helgin var alveg ágæt svosem, þreif mest allan laugardaginn og þvoði þvott, alveg ótrúlegt að þar sem bara tvær manneskjur búa að það skuli alltaf vera svona viðbjóðslega mikill þvottur alltaf:!: erum við bara svona skítug8|

Afmælisdagurinn minn fór ágætlega fram, við fengum fólk í mat, sem by the way hafði ekki hugmynd um að ég ætti afmæli :( en ég get með sanni sagt að það var sko alls ekki þeim að kenna... Inga Hanna og Sandra buðu mér svo á American Style seinni part dagsins, og síðan fórum við í bíltúr...

þetta var helgin mín í stórum dráttum...;) (ömurlegt orðatiltæki)

Svo ætlaði ég að skrifa hérna niður mál sem að ég hef tekið eftir nýlega í skólanum. Það er gangur hérna með skólastofum, við erum nebbla sér á báti með svoleiðis því enginn annar skóli nokkurntímann með gang með skólastofum, hversu stupid var að segja þetta:frown: jæja byrjum aftur... Það er einn gangur í skólanum sem nokkrir strákar hittast alltaf og sitja þar ALLT matarhléið, allavega, ekkert að því að þeir sitji þar, nema að það gengur hellingur af fólki þarna framhjá og þá stelpur í tugatali... Svo ákvað ég, snillingurinn ég:!:, að fylgjast með þeim, svo síðustu daga er ég búin að vera að skoða hvað þeir eru að gera með að sitja þarna nokkrir án þess að tala um neitt sérstakt... Heyrðu:!: hvað haldiði:!: þeir eru að "rate-a" rassa, eða gefa þumal upp eða þumal niður eftir því, að mér skilst, hversu mikið rassinn sveiflast:whut: HALLÓ:!: þeir eru á aldrinum 23-26:!: þeir eru með þeim elstu í dagskólanum og þeir hafa greinilega ekki þroskann í þennan aldur8| Ég vil ekki vera að labba hérna um skólann vitandi það að þeir eru að gefa rassinum á mér stig eftir því hversu mikið hann vaggar:whut: Maður sér ekki einu sinni "litlu" strákana gera svona hallærislegt:!: svo kannski er maður að labba framhjá og er kannski ekki í svona "vaggistuði" og þá sjá ALLIR aðrir þumalinn niður og þá vita allir að maður er með ömurlegan rass8|... skil ekki málið:!: Hvenær er maður svosem í einhverju sérstöku vaggistuði8)

En já þetta var officially blogg dagsins...

Over and out:!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 14:57:18 / Gaukdal

Úpps! en ég á afmæli í dag ;o)

Jæja. búinn með einn "veikindadag" í öllu þessu mikla maraþoni mínu og þetta er bara rétt að byrja...8|

Dagurinn í gær fór í þrif og læti, svona mest allan daginn, svo það er eiginlega ekkert meira um það að segja nema af einhverjum ástæðum gleymid ég að blogga...8|

Fór svo í afmæli í gær til hennar Elsu, sem er kærastan hans bróður míns, og það var alveg þvílíkt stuð, gaman að koma saman og rifja upp spánarferðina og svoleiðis dæmi... Hey svo eitt dæmi um hvað heimurinn er lítill:!: Í afmælinu fór ég á klósettið til að laga meikuppið, ekki í frásögur færandi svona þegar maður ætlar að vera sætur, allavega, svo kemur inn stelpa sem ég kannaðist alveg svakalega mikið við og þá er hún með mér í íslensku og situr bara hinu megin í stofunni:!: og hún var semsagt að vinna með Elsu á Hrafnistu eða eitthvað svoleiðis...

En í dag á ég afmæli og þeir sem hafa munað eftir því færi ég góðar kveðjur og þakklæti... en hinum:whut: já ég ætla sko ekki að nefna hina... ;)

Sandra og Inga Hanna ætla að fara með mig á American Style á eftir og það verður geggt skemmtó:!: ég bara veit það, þær eru alltaf svo skemmtilegar...

Ég er alveg í bullinu hérna:!: ég er bara að skrifa til að skrifa og ég veit ekkert hvað ég á að skrifa þegar en ég verð að skrifa eitthvað8)

...ég er að hugsa um að gera eitthvað annað, ég er meira að segja að hugsa um að framkvæma það og hætta þessari rugluðu bloggfærslu...

...já...

ehhhmm...

:!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 23:05:27 / Gaukdal

Dagurinn í dag, 3. mars...

...fór bara ágætlega vel fram... gerðist ekki mikið, fór í próf og svona óskemmtilegt stuff...

Annars var ég að passa litlu frænku mína sem er alveg 11 ára og að verða stærri en ég8| svo ég ætti kannski að kalla hana yngri frænku mína:$ en já hún var og er eitthvað lasin svo að ég passaði hana á meðan mamma hennar fór í ræktina og spriklaði, hún kom svo heim og gerði svona líka fínt salat handa mér og henni því að barnið var ekki með lyst. Ég verð nú að segja að ég er ekki mikil salat manneskja en þetta var bara með því besta sem ég hef smakkað... svona salatlega séð allavega, fer t.d. ekki að bera saman salat og nautasteik8)

Svo eru sæludagar í skólanum í næstu viku og það er allt að verða vitlaust út af þeim, netnotkun í hámarki, skólinn að springa, pirraðir nemendur á skrifstofunni(ég var ein af þeim) og ég hef aldrei séð nemendur eins þreytta:!: Kennararnir eru nebbla alveg að missa sig í prófum, verkefnum, skýrslum og ritgerðum og nemendur eru að drukkna:!: Allir með bauga niðrá tær og kennararnir eru ekkert skárri... Allavega, ég er búin að velja fyrir sæludagana og ég valdi lærdóm, lærdóm og hestaferð... það er meir að segja orðið fullt í lærdómshópana og komast 200 að í hvort skipti, segir það ekki eitthvað til um stöðu nemenda í skólanum lærdómlega séð?:whut:

Já, allavega, sit heima núna eitthvað að pæla hvort að ég eigi ekki bara að fara að sofa og taka daginn snemma þar sem að ég er að fara í afmæli annað kvöld og þarf massíft að læra...

...bara 28 færslur eftir8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 09:03:32 / Gaukdal

Dagurinn í dag...

Byrjar bara ósköp venjulega, allavega það sem komið er... Mamma vakti mig í morgun en fór svo sjálf aftur að sofa svo þegar ég var tilbúin þá var hún enþá á náttfötunum:haha: sem er bara eitthvað sem gerist á hverjum morgni... Ég vildi líka minna fólk á að hann Ingimar litla dúllan okkar á afmæli í dag!!! Til hamingju með það... *brúhhhh* (ég að blása í flautu) 8) Svo er alveg að koma helgi og Guð minn hvað það verður mikið að gera, það er útskriftarnemahittingur á Ara í Ögri á föstudagskvöldið klukkan 23:00 og síðan er afmælisboð hjá Elsu sem er kærastan hans bróður míns, og svo á sunnudag á ÉG afmæli...:D Jibbí... jei:!: Helginni og afmælisdeginum verður samt eitt í lærdóm, segi það núna:haha:, ég er nebbla að fara í próf á mánudaginn, tvö próf á þriðjudaginn og er með eina kynningu á Martin Luther King, svo ég skal hoppa hæð mín á miðvikudaginn þegar þetta allt aer búið:!: Guð hjálpi sálu minni, það er alveg magnað hvað kennarar setja ALLTAF ALLT á SAMA daginn á SAMA tíma... Þegar ég verð forseti er þetta það fyrsta sem ég breyti:whut: Svo eru sæludagar í næstu viku, en veður hægt að njóta þeirra? Ó nei:!: kennararnir sjá líka til þess, það verður nebbla "frí" eftir hádegi á þriðjudag, og allan miðvikudag, fimmtudag og föstudag og svo er skóli bara á mánudaginn. En eins og kennurum er einum lagið þá AUÐVITAÐ er ekki hægt að leyfa manni fá frí í þeim skilningi, heldur þarf maður að gera tvær ritgerðir og eina "book report", tvær skýrslur og 17 verkefni í tölvum:!: ekki að ég hafi verið að sluksa og nennti ekki að gera verkefnin heldur var verið að setja mig í áfangan til að ég gæti útskrifast, og það var ekki hægt að fatta það fyrr:whut: Jamm... þetta er svona beisiklí það sem gerist í dag og næstu daga... ...Gaukdal over and out:!: ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 13:48:55 / Gaukdal

Öskudagur...

Já í dag er öskudagur, bara svona ef það hefur farið framhjá einhverjum... ;)

...:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Leitarbox